Ég og Unnur unnum saman á stöðvunum. Við byrjuðum í tölvunum, og fórum í nokkra leiki tengdum frumum. Það skildum við ekki neitt og ákváðum að færa yfir í smásjánar. Þar bjuggum við til sýni úr blað með ljósrituðum stöfum. Þar sáum við stafina mjög vel og skýrt. Eftir það ákváðum við að kíkja á nautasæðið og það var gaman og áhugavert að sjá það. Síðan bjuggum við annað sýnið úr gúrkuhýði en við skárum það í mjög þunna sneið gerðum sýnið klárt og skoðuðum það vel. Þar sáum við allt mjög skýrt og þetta var mjög spennandi.