Þrýstingur í líffærum líkamans
Þrýstingsbreytingar við öndun
120 yfir 60
- Hjartað skapar þrýsting í æðakerfinu. Lungun og vöðvarnir umhverfis þau hafa áhrif á þrýsting loftsins í þeim.
- Grunneiningin fyrir þrýsting er paskal (Pa), en sú eining er nánast aldrei notuð innan heilbrigðisgeirans.
Þrýstingsbreytingar við öndun
- Starfsemi lungnanna er metin á mismunandi vegu, meðal annars með því að mæla hversu mikinn þrýsting við getum skapað þegar við öndum frá okkur og þegar við öndum að okkur.
- Á sjúkrahúsum er þessi þrýstingur mældur í einingunni cm H2O.
120 yfir 60
- Blóðþrýstingur er 120/60 mm Hg, segir læknirinn oft við þá sem koma til hans og eru ungir og frískir.
- Fyrri talan tilgreinir þrýstinginn sem myndast í slagæðunum þegar hjartað dælir blóðinu út í þær og hin talan er þrýstingurinn sem ríkir í æðunum þegar hjartað er í hvíld.